Á fimmtudaginn fengum við ánægjulega heimsókn frá Alþjóðlegu Frímúrarareglu karla og kvenna (LE DROIT HUMAIN).
Ástæða heimsóknarinar var til þess að færa félaginu veglegan styrk til frekari uppbyggingar á starfinu og vitundarvakningu almennings á afleiðingum fólks með ákominn heilaskaða.
Upphæðin nam 600 þúsund kr. sem Stefán John Stefánsson tók við á skrifstofu félagsins í dag.
Hugarfar þakkar kærlega fyrir þetta framlag og þeim Kristjáni Jóhannessyni og Elísabetu Sigurðardóttur innilega fyrir komuna.