| Hér kemur texti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
| Ég er í Hugarfari vegna aðstæðna minna.
Ég er aðstandandi tveggja einstaklinga með heilaskaða þ.e. eiginmannsins og sonarins en þeir eru báðir með heilaskaða eftir slys. Sonurinn eftir líkamsárás (19. ára) árið 1998 en eiginmaðurinn (47. ára) eftir vinnuslys árið 2000. Síðan þá er mikið vatn runnið til sjávar og hef ég ýmislegt lært á þessum tíma. M.a. það að höfuðáverkinn kemur ekki eins út hjá neinum en margar mismunandi útgáfur eru um tjón, þó margt sé líka eins á milli einstaklinga. Mikið mæðir á aðstandendum þegar svona er komið og er nauðsynlegt að vita að maður er ekki einn og hefur það eitt og sér gefið mér styrk til að halda áfram minni baráttu.
Mér finnst málefnum fólks með heilaskaða áfátt og vil því gera mitt til að þoka þeim áfram. |
| Ég lenti í bílslysi um áramótin 2002-2003 og hlaut dreifðan heilaskaða.
Ég hef náð ótrúlegum bata miðað við þær vonir sem mér voru gefnar og ég vil leggja mitt af mörkum til að opna umræðuna um heilaskaða og gefa fólki von. Minn draumur er að börn og fullorðnir sem hljóta heilaskaða fái góða endurhæfingu þar sem lögð verði m.a. áhersla á minnisþjálfun, fræðslu fyrir aðstandendur og eftirfylgni að endurhæfingu lokinni. Eftirfylgni sem hjálpar fólki að ná aftur fótfestu í lífinu. |
| Ég er aðstandandi.
Faðir minn fékk áfall rétt rúmlega þrítugur. Þá giftur maður með börn á sínu framfæri. Ég lauk sjúkraliðaprófi vorið 2005 og kláraði þroskaþjálfaskor við KHÍ vorið 2008.
Faðir minn hefur búið með minni fjölskyldu mörg undanfarin ár.
|
| Ég er aðstandandi.
Dóttir mín lenti í bílslysi í nóvember 2002 einungis 13 ára gömul. Hún hlaut dreifðan heilaskaða og mikla hreyfihömlun. Ég komst að raun um að kerfið virkar ekki sem skyldi og vil leggja mitt að mörkum til að fólk með heilaskaða eigi kost á samsvarandi lífskjörum og réttindum hér á landi eins og fólk með heilaskaða hefur í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Frá ársbyrjun 2006 hef ég verið í rúmlega fullu starfi við að sjá um dóttur mína og mál henni tengd. |
| Ég er móðir drengs sem varð fyrir bíl 10 ára gamall og hlaut við það heilaáverka. Mér hefur orðið ljós sá mikli skortur sem er hérlendis á stuðningi við einstaklinga með áunninn heilaskaða og fjölskyldur þeirra. Vil ég stuðla að því að þessi hópur fái viðurkenningu á sínum vandamálum og að hann njóti viðeigandi stuðningsúrræða.
|
| Anna Soffía Óskarsdóttir fulltrúi Fagráðs |
| Vinnur með stjórninni m.a. vegna heimsíðunnar.
Ég lenti í umferðarslysi 2007 og hlaut framheilaskaða. Ég vinn með stjórn Hugarfars. Mig langar til að uppýsa fólk um heilaskaða og sporna gegn fordómum hjá heilasköðuðum sjálfum og hjá þjóðfélaginu almennt. |
|
|
|
|
| |