|
Þegar síðan kom að því að félagið var stofnað þann 21. febrúar 2007 tók Erling þátt í stjórnarstörfum félagsins og lagði fram hugmyndir sínar að nafni og merki félagsins og voru góðar undirtektir með að nota hvort tveggja. Síðan kom í ljós að merkið sem Erling hannaði hentaði ekki nógu vel sem logo og var því tekið til við að hanna merki sem var einfaldara að sniðum.
Við sem erum félagar í Hugarfari þökkum því Erling Smith kærlega fyrir þetta táknræna nafn og merki sem á eftir að taka sig vel út sem hálsmen. Hér fyrir neðan má sjá hvernig merki félagsins er í dag.
|





Árið 2002 fékk Erling Smith tæknifræðingur og félagar hans sem þá voru sjúklingar á Reykjalundi þá hugmynd að stofna félag fyrir fólk með heilaskaða. Erling datt nafnið Hugarfar í hug og hann tók til við að hanna merki félagsins sem sýnir fjölskyldu þar sem einn fjölskyldumeðlimur er með heilaskaða og hinir halda verndandi höndum utan um hann.