Charity Center

Félagið
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Að stofnun Hugarfars stóð Reykjalundur ásamt fleira fólki. Fram höfðu komið beiðnir og athugasemdir um að félag fyrir fólk með heilaskaða og aðstandendur væri ekki til á Íslandi.

Boðað var til ráðstefnu í Hringsal Landspítalans við Hringbraut. Mætti þar mikill fjöldi fólks. Upp frá þessum fundi var boðað til fleiri funda og var í framhaldi af þeim stofnaður undirbúningshópur sem átti að undirbúa og semja lög fyrir væntanlegt félag.
 
Úr varð að Hugarfar var stofnað 21. febrúar 2007. Síðan þá hafa verið haldnir reglulegir fundir bæði hjá stjórn og svo almennir félagsfundir. Ýmis fræðsla og skemmtun hefur verið á félagsfundunum. Síðast liðið ár höfum við líka verið með ungliðadeild sem hittist einu sinni í mánuði og gerir ýmislegt saman fer t.d. í keilu, kaffihús eða út að borða. Heimasíða var komin í loftið á árs afmæli félagsins. Félagið hefur einnig gefið út bækling sem hefur verið dreift víða. Við höfum líka farið út á land með kynningar á félaginu
 
Í dag eru allir fundir Hugarfars haldnir að Hátúni 10, jarðhæð, Reykjavík.
Allir fundir eru auglýstir á heimasíðunni. 

 

www.hugarfar.is
hugarfar[hja]hugarfar.is
Sími: 661-5522